Heihó! Við erum enn á lífi og höfum það bara skítsæmilegt. Lífið í Mexico er mjög rólegt og fínt, við erum ekkert að stressa okkur út snemma á morgnanna en getum samt klifrað hvaða leiðir sem er því það eru svo fáir hérna. Við erum oftast að klifra til um ca. 6 og eftir það er afslöppun á tjaldsvæðinu eða við húkkum okkur far niður í bæ (allir eru úber nice og maður er venjulega svona 20sek að fá far). Í gær fengum við kvöldmat með kóki á 300kr svo verðin hérna eru ekkert að buga okkar. Planið er að vera hérna í 4-5 daga í viðbót og taka svo rútu yfir til Texas.
Bergur ekkert lítið sáttur með risavaxna kleinuhringina
Biggi og Henrik í rómantískri göngu gegnum dalinn
Burgers að klifra
"strike a pose hanskahendi"
Smá bugun í hitanum stundum
Movienight á El Búho, kaffihúsinu í bænum sem er rekið af klifrurum
Mexicanar eru ekkert að stressa sig á lífinu þegar kemur að keyrslu. Vantar sæti? þá situr þú bara á gólfinu eða aftan á pallinum (líka þó þú sért bara 2ára og einn á pallinum). Ertu að drekka? það er allt í lagi.. Engin bílbelti? hver þarf þau svosem? ..En ekki voga þér að keyra ber að ofan því þá færðu sekt!
The gang með pari frá mexico sem við klifruðum með í nokkra daga.
ást og friður þangað til næst
















No comments:
Post a Comment