Nú er rétt rúmlega vika síðan við fórum frá Íslandi og ferðalagið er so far búið að vera magnað en á sama tíma örlítið þreytandi. Við byrjuðum á því að fljúga til Boston og eyddum tveim löngum dögum þar í að versla dót fyrir ferðina, tjald, klifurlínur, FLUGNASPREY og fleira.
Frá Boston lá leið okkar til Cancun í Mexico og ódýrasti kosturinn var að fljúga í gegnum Mexico City. Við röltum af stað á lestarstöðina í Boston með allt á bakinu um 11 leitið á laugardagsmorgni og tókum lestina uppá flugvöll. Flugið frá Boston til MexCity tók um 5 og 1/2 tíma og eftir það tók við 9 tíma bið á flugvellinum. Við höfðum hugsað okkur að leigja skápa og kíkja inní borgina en allir skápar voru uppteknir svo í staðinn var borðað, sofið á gólfinu, drukkinn bjór og spilað. Við tékkuðum okkur svo inn í flugið til Cancun kl. hálf 4 aðfaranótt sunnudags og vorum komin í loftið um 6 leitið, inní íbúð í Cancun um 10 á sunnudagsmorgun. Ekki nenntum við að eyða deginum í svefn svo við fórum að skoða okkur um, versla mat og svo beint í sundlaugina seinni partinn.
Við vorum nálægt ströndinni, með sundlaug í garðinum og ótrúlega þægilega íbúð svo þessir 3 dagar sem við eyddum í Cancun voru mega nice, fyrir utan örlítið rauðar og viðkvæmar axlir eftir sólina og sirka 25 flugnabit á mann (fyrir utan Henrik... hann er með eitt!!)
Akkurat núna erum við svo stödd í Monterrey að vinna í að koma okkur til El Potrero Chico þar sem planið er að vera næstu 2-3 vikurnar að klifra. Planið er að gista í tjaldi svo það er mikil spenna að sjá hvort við lifum það af.. Það er svolítið mikið hlýrra hérna en á Íslandi.. hitinn er búin að vera í kringum 30-35°C, það er aðeins meira af skordýrum en við erum vön og á góðri nóttu gæti Henrik vakið upp kirkjugarð með hrotunum sínum.. En þetta kemur allt í ljós!
Until next time!








No comments:
Post a Comment