Saturday, October 24, 2015

fellibylurinn...

Við ákváðum að vera 5 daga lengur í Mexico en "planið" var.. mjög auðvelt að breyta planinu þegar það er nánast ekkert plan. Við erum búin að klifra slatta þrátt fyrir mikla rigningu á nóttunni. Klettarnir eru mjög fljótir að þorna eftir rigningu, og oft sleppa þeir þó það sé rigning í bænum og tjaldsvæðinu. 

Við erum í austurhluta mexico ekki svo langt frá landamærum Texas og fellibylurinn Patricia skall á vesturströnd Mexico svo við erum í góðu lagi, við eigum hinsvegar sennilega eftir að finna fyrir honum í formi smá vinds og mikillar rigningu. 
Í dag var ekkert klifrað vegna rignigar og við erum mjög spennt að sjá hversu lengi Wall-Mart tjaldið okkar endist í þessu veðri.. það er aðeins byrjað að leka nú þegar! 


No comments:

Post a Comment