Ég (Bergur) var bitinn af margfætlu á laugardagin síðasta, Henrik lýsti einvíginu sem svo
"First man down!
After a good leadclimb
Bergur
woke up a dragon(centipede) in the middle of the climb. They fought
long and hard until the bravery of Bergur took over and he threw the
demon spawn to the ground and it crawled back into the abyss.
Now the valiant warrior is taking his rest from the poison bite."
Eins og Kata skrifaði um áður þá var ég að klifra mjög létta en langa leið. Þegar ég gríp um eitt gripið finn ég mikinn sting og er fljótur að fatta hvað var að gerast. Ég kippi hendinni út og þar er þetta kvikindi hangandi á fingrinum á mér, ég hristi hann af.
Kata var að tryggja hélt að þessi öskur í mér þýddu að ég væri við það að detta, hún setti sig í stöðu og var undirbúin að grípa mig, þegar hún lítur upp sér hún kvikindið fljúga niður og lenda við hliðina á sér og svo hljóp það í burtu.
Ég ákvað að klára leiðina en sársaukinn magnaðist með hverri hreyfingu og endaði á því að koma niður og meta aðstæður.
Íslendingarnir við höfðum ekki hugmynd um hvað við áttu að gera en svo tók ég þá ákvörðun að fara niður á tjaldsvæði að spyrja. Hetjan Elín kom með mér þar sem hún kann spænsku sem kom sér mjög vel þennan dag.
Jovita (vinnur á tjaldsvæðinu) var ekki mjög viss um hvað ætti að taka til bragðs og hringdi útum allan bæ og spurði ráða. Að lokum var sú ákvörðun tekin að leita aðstoðar læknis og byrjaði það ævintýri hjá "civil protection" en þar var engan lækni að finna því það var laugardagur
næst var tekið á það ráð að fara í apótek. Annað hvert hús hér virðist vera apótek en hún var með eitthvað ákveðið í huga og fórum við þangað. Sá læknir var ekki við en hún var með einhverjar töflur.
Eftir að hafa stoppað heima hjá Jovita
til að láta mannin hennar hafa lyf fórum við aftur upp á tjaldstæði.
Um fimm leitið var höndin orðin eins og uppblásin hanski og bólgan náði langt niður á framhandlegg. Og ég fór aftur og spurði hvort að ég ætti að hafa áhyggjur, Maðurinn sem var í afgreiðslunni þá vissi ekki meira en sú fyrri og hringdi útum allt til að reyna að finna lækni. Á endanum mætti eigandi svæðisins sem heitir Luli sjálf og bauðst til að fara með mig á næsta sjúkrahús í Monterrey.
Eftir smá umhugsun ákvað ég að þyggja það boð og förum við þangað.
Þar sem ég er alveg ósjálfbjarga neyddist Elín aftur til að koma með.
Luli spurði hvaða sjúkrahús við vildum fara á þar sem þrjú eru í boði og öll mis góð. Við báðum bara um einhvern lækni og endaði hún á því að fara með mig á það fínasta. Ég veit voða lítið hvað gekk á en það var mikið af spænsku og Elín og Luli voru báðar í fullu starfi fyrir mig.
Ég þurfti að fá tvær sprautur í rassin og það fanst Elínu sko ekki leiðinlegt..
Á leiðinni til baka stoppuðum við í taco (auðvitað).
Ég fór með dagin eftir með krökkunum til að horfa á þau klifra en endaði bara á því að klifra helling sjálfur þrátt fyrir að vera með risavaxna hönd. Ég er orðin þekktur á svæðinu sem "the guy who got bit" og fólk hefur verið að spyrja mig útí þetta