Við erum búin að taka því nokkuð rólega og klifra þægilegar leiðir meðan við venjumst klettunum, hitanum og skordýrunum..
Skordýrin, réttara sagt risavaxin neonlituð margfætla náði einu okkar í dag.. Bergur var að klifra þægilega og auðvelda en langa leið, komin upp u.þ.b 1/3 af leiðinni þegar hann öskraði. Ég, Kata var að tryggja hann og hélt í sekúndubrot að hann væri að detta og setti mig í stöðu eeeen um leið og ég leit upp kemur þetta neonlitaða flykki fljúgandi á móti mér. Bergur greip semsagt í stórt og gott grip fyrir ofan sig á klettinum án þess að hafa hugmynd um að þar byggi eitt stykki viðbjóðslegt fyrirbæri, sem var ekki sátt með heimsóknina og beit hann í puttan.. Bergur kippti hendinni af veggnum en þá hékk margfætlan ennþá á honum svo hann þurfti að sveifla henni af og hún kom fljúgandi niður til mín og hljóp í felur. Fyrsta ákvörðun hjá Berg var að halda áfram og klára leiðina en eftir dass af blótsyrðum og stutta umræðu ákvað hann að koma niður, eftir það bólgnaði puttinn upp með hverri mínútunni svo hann og túlkurinn okkar (Elín) fóru til baka á tjaldsvæðið. Í stuttu máli var höndin á Berg orðin einsog uppblásinn hanski um 5 leitið svo þau kíktu á sjúkrahúsið í næsta bæ og fengu lyf og sprautur. HANN MUN LIFA ÞETTA AF eeen getur sennilega ekki klifrað næstu daga. :(
No comments:
Post a Comment